Innhverf íhugun
við streitu og kvíða
Streita hefur áhrif á alla og getur komið í veg fyrir að við nýtum hæfilæka okkar til fulls. Hjá sumum getur streita verið lamandi og birst sem þunglyndi, kvíði og athyglisbrestur. Hvort sem þú átt velgengni og lífshamingju að fagna eða ekki getur innhverf íhugun stuðlað að því að þú njótir lífsins betur með því að uppræta streitu.
Innhverf íhugun við streitu og kvíða
Streita hefur áhrif á alla og getur komið í veg fyrir að við nýtum hæfilæka okkar til fulls. Hjá sumum getur streita verið lamandi og birst sem þunglyndi, kvíði og athyglisbrestur. Hvort sem þú ert hamingjusamur/hamingjusöm og farsæl(l) – eða ert langt frá því – getur innhverf íhugun stuðlað að því að þú njótir lífsins betur með því að uppræta streitu.
Vísindarannsóknir á áhrifum innhverfrar íhugunar gegn streitu og kvíða
Innhverf íhugun er öflugt tæki sem sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að dregur úr kvíða og öðrum kvillum með því að draga á áþreifanlegan hátt úr streitu.
Hér eru nokkur af þeim áhrifum sem innhverf íhugun hefur á andlega líðan:
- dregur úr áfallastreituröskun (PTSD)
- dregur úr þunglyndi
- dregur úr kortisóli
- dregur úr kvíða
- bætir svefn og dregur úr svefnleysi
Árangursríkari en aðrar aðferðir
til að draga úr lyndiskvíða
Lyndiskvíði (e. trait anxiety) er mælikvarði á varanlega kvíðatilfinningu andstætt ástandskvíða (e. state anxiety), sem mælir kvíðaástand á tilteknu augnabliki. Yfirlitsgreining á 146 mismunandi rannsóknum leiddi í ljós að iðkun innhverfrar íhugunar var ríflega tvöfalt árangursríkari en aðrar slökunartaðferðir til að draga úr lyndiskvíða.
Róandi áhrif innhverfrar íhugunar á taugakerfið hjálpa einstaklingum að stjórna og jafna sig eftir áfall.


Innhverf íhugun dregur um 30% úr magni kortisóls, hormóni sem tengist streitu
Þegar við erum stressuð kveikir mandlan, eða „óttastöð“ heilans á nýrnahettunum til að losa streituhormónið kortisól. Langvarandi streita tengist hækkuðu magni kortisóls, sem oft kemur fram sem kvíði, þunglyndi og pirringur.
Regluleg iðkun innhverfrar íhugunar dregur úr kortisóli og hjálpar líkamanum að viðhalda stöðugra hormónastigi.
Innhverf íhugun dregur úr einkennum áfallastreituröskunar og þunglyndis um 20,5%
Nokkrar vísindarannsóknir sýna fram á árangur innhverfrar íhugunar í meðferð sjúklinga með áfallastreituröskun.
Ein rannsókn sýndi að innhverf íhugun minnkaði þörfina fyrir geðlyf sem nauðsynleg voru fyrir meðferð við kvíða og áfallastreituröskun og jók sálræna vellíðan. Um 20,5% munur var á innhverfri íhugun og samanburðarhópnum með tilliti til alvarleika sálrænna einkenna að sex mánuðum liðnum.

