Kennsla í innhverfri íhugun
Innhverf íhugun er kennd fimm daga í röð. Hún er aðeins kennd af kennurum Íslenska íhugunarfélagsins sem öll hafa kennsluréttindi í tækninni.
Skipulag námskeiðs í innhverfri íhugun
Farið í tilgang og kosti innhverfrar íhugunar auk þess sem skipulag námskeiðsins er útskýrt. Þú ert jafnframt búin(n) undir að koma daginn eftir í einkatíma til að læra tæknina. Fyllt er út eyðublað og í kjölfarið er stutt einkaviðtal þar sem tækifæri gefst til að spyrja persónulegra spurninga.
Einkatími með kennara sem tekur um 1,5 klst. Þar færðu þína möntru og leiðbeiningar um hvernig á að nota hana rétt. Í lok tímans ert þú fær um að íhuga á eigin spýtur heima í 20 mínútur tvisvar á dag.
Námskeið eru haldin reglulega og auglýst hér á vefsíðunni. Ef tímasetningin hentar ekki getur þú haft samband við kennara til að kanna aðra valkosti.
Fyrirlestrar og umræður í ljósi iðkunarinnar heima. Á degi þrjú er rætt um merki réttrar íhugunar, á degi fjögur er farið nákvæmlega í gangverk íhugunarinnar og á degi fimm er farið í áhrif langtíma iðkunar innhverfrar íhugunar og möguleikann á æðri vitundarþroska með reglulegri ástundun. Hver tími tekur um 1,5 klukkustund og þar með lýkur kjarna námskeiðsins en upprifjunarfundir eru 10 og 20 dögum síðar.
Tveir fundir til viðbótar eru hluti af námskeiðinu. Þeir eru 10 og 20 dögum eftir að fimm daga hlutanum lýkur. Þar mun kennarinn þinn staðfesta að þú sért að íhuga rétt, svara spurningum, upplýsa þig um frekari tækifæri og leiða hópíhugun.
Að auki muntu alltaf hafa aðgang að áframhaldandi leiðsögn hjá hvaða íhugunarkennara sem er á vegum Íslenska íhugunarfélagsins og kennurum í flestum löndum heims. Þú munt einnig hafa aðgang að TM-appinu þar sem þú færð aðgang að hentugum tímamæli fyrir íhugunina og aðgang að myndskeiðum, viðburðum á netinu tengdum innhverfri íhugun og fleiru.
