Hverjir eru kostir innhverfrar íhugunar?

Innhverf íhugun veitir huga og líkama djúpa hvíld. Hvíldin getur losað djúpstæða streitu í taugakerfinu og bætt starfsemi heilans. Eftir aðeins nokkurra mínútna iðkun innhverfrar íhugunar finnist fólki það gjarnan endurnært, skýrara í hugsun og tilbúnara til að starfa.

Hverjir eru kostir innhverfrar íhugunar?

Innhverf íhugun veitir huga og líkama djúpa hvíld. Hvíldin getur losað djúpstæða streitu í taugakerfinu og bætt starfsemi heilans. Eftir aðeins nokkurra mínútna iðkun innhverfrar íhugunar finnist fólki það gjarnan endurnært, skýrara í hugsun og tilbúnara til að starfa.

4 mínútur

„Hver sem ástæðan er fyrir því að við byrjum að iðka innhverfa íhugun er ljóst að við byrjum að njóta margvíslegra uppbyggilegra afleiðinga þess fyrir huga og líkama.“

Emily Fitz Randolph, réttindakennari í innhverfri íhugun

Sannreynd áhrif
innhverfrar íhugunar

Ríflega 600 ritrýndar rannsóknir hafa verið birtar á innhverfri íhugun frá árinu 1970 til dagsins í dag. Slíkur fjöldi rannsókna á sér enga hliðstæðu í rannsóknum á einstökum hugleiðsluaðferðum.

Þessi rannsókn sýnir að innhverf íhugun hefur mikilvæg áhrif á andlega og líkamlega heilsu – auk áhrifa á tilfinningavellíðan:

  • bætt heilastarfsemi
  • aukin atorka
  • aukin sköpunarhæfni
  • vitundarvíkkun
  • aukið heilbrigði hjarta-og æðakerfis
  • betri svefn

Násta námskeið

1 mín.

„Svonefnt „flótta eða árásar“-viðbragð einstaklingsins (e. fight or flight response), sem virkjast við stress, endurstillist við iðkun innhverfrar íhugunar.“

Fred Travis, Ph.D., prófessor í sálfræði

Hundruð vísindarannsókna hafa sýnt fram á margvíslega kosti innhverfrar íhugunar

Innhverf íhugun
við streitu og kvíða

Innhverf íhugun hefur reynst eitt árangursríkasta verkfæri sem til er til að útrýma streitu og draga úr streitutengdum vandamálum: kvíðaröskun, þunglyndi, áfallastreituröskun, lélegurm svefni, svefnleysi og fleiru.

Skoða nánar

Innhverf íhugun
til að auka skýrleika hugans

Með reglulegri iðkun innhverfrar íhugunar upplifa iðkendur vitundarvíkkun sem auðgar daglegt líf og stuðlar að skýrri og frjórri hugsun. Slíkt hefur í för með sér aukna hæfni til að sigrast á áskorunum.

Skoða nánar

Innhverf íhugun
fyrir bætta heilsu

Að draga úr streitu hefur jákvæð áhrif á alla líkamsstarfsemina. Sýnt hefur verið fram á að innhverf íhugun bætir starfsemi hjartans, dregur úr háum blóðþrýstingi og leiðir til minni þarfar fyrir læknisþjónustu auk þess að styrkja ónæmi.

Skoða nánar

Innhverf íhugun
til að bæta samskipti

Þegar við erum róleg og kjörnuð einkennist hegðun okkar síður af ósjálfráðum viðbrögðum, við verðum umburðarlyndari og umhyggjusamari. Rannsóknir sem gerðar voru á nemendum, starfsfólki, hermönnum og föngum sem iðkuðu innhverfa íhugun sýndi fram á bætt samskipti þeirra sem íhuguðu.

Skoða nánar

Innhverf íhugun
til að stuðla að friði í samfélaginu og heimsfriði

Innri friður einstaklinga getur haft jákvæð áhrif á samvitund samfélagsins og heimsins. Rannsóknir sýna að áhrif stórra hópa sem iðka innhverfa íhugun og hina háþróuðu TM-Sidhi tækni tengjast jákvæðum breytingum í samfélaginu og minni áhrifum stríðsátaka.

Skoða nánar

Næsta skref: Kennsla í innhverfri íhugun

Frekari upplýsingar um námskeið í innhverfri íhugun, þar á meðal varðandi uppbyggingu, námsgjald og hvað er innifalið.

Nánari upplýsingar um námskeið