Skýrari hugur með innhverfri íhugun
Við minni streitu verður hugurinn fær um að starfa á fullkomnari hátt. Hin djúpa hvíld í innhverfri íhugun upprætir streitu sem leiðir til aukins skýrleika í hugsun. Samhliða eykst sköpunarhæfni í daglegu lífi. Með reglulegri iðkun varpar innhverf íhugun hulunni af andlegum möguleikum okkar og gerir kleift að ná meiri árangri í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur.
Skýrari hugur með innhverfri íhugun
Við minni streitu verður hugurinn fær um að starfa á fullkomnari hátt. Hin djúpa hvíld í innhverfri íhugun upprætir streitu sem leiðir til aukins skýrleika í hugsun. Samhliða eykst sköpunarhæfni í daglegu lífi. Með reglulegri iðkun varpar innhverf íhugun hulunni af andlegum möguleikum okkar og gerir kleift að ná meiri árangri í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur.
Vísindaleg staðfesting á því hvernig innhverf íhugun þróar möguleika hugans
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á áhrifum innhverfrar íhugunar á ólíka hópa í samfélaginu – nemendur, starfsfólk og fólk í áhættuhópum – sýna að innhverf íhugun varpar með náttúrulegum hætti hulunni af hugrænni færni. Þetta gerir kleift að njóta betur þess sem menn taka sér fyrir hendur og afkasta meiru.
Hér eru nokkur dæmi um hugrænar framfarir vegna reglulegrar iðkunar innhverfrar íhugunar:
- betri athygli og afköst
- bætt minni
- meiri orka
- stöðugri aðgangur að skapandi færni
Samræmd heilastarfsemi meðan á og eftir iðkun innhverfrar íhugunar
Heilabylgjuprófanir (EEG) sýna að alfa-einn heilabylgjur, sem birtast við iðkun innhverfrar íhugunar, eru frábrugðnar þeta heilabylgjum sem tengjast núvítundarhugleiðslu. Alfa-einn heilabylgjur styðja samþætta heilastarfsemi, sem leiðir til aukinnar hugrænnar færni og vökullar kyrrðar sem helst fram yfir íhugunartímann sjálfan.
Ennfremur sýna rannsóknir að það að „transendera“, þ.e.a.s. að fara handan við svið hugsana með innhverfri íhugun, tengist samræmi heilasveiflna á milli ólíkra hluta heilans, sem einnig á þátt í heildstæðari starfsemi heilans.


Innhverf íhugun leiðir til heildstæðrar aukningar á vitsmunalegri færni
Þessi rannsókn sýnir aukinn árangur á stöðluðum greindarprófum og þar með nýja möguleika til þroska og framfara í lífinu.
Ekki hefur verið sýnt fram á að stöðluð menntun þrói greind eftir unglingsárin; þegar innhverfri íhugun er á hinn bóginn bætt við námskrá framhaldsskóla eða háskóla hefur verið sýnt fram á að greind aukist á marktækan hátt.
Iðkun innhverfrar íhugunar dregur úr streitu og eykur sjálfstraust
Í þessari rannsókn var konum á aldrinum 13-26 ára, sem bjuggu við fátækt í fátækrahverfum Úganda, kennd innhverf íhugun. Aðstæður þessara kvenna eru dæmigerðar fyrir þær milljónir kvenna og stúlkna sem búa við fátækt í heiminum og takast daglega á við erfiðar áskoranir. Eftir fimm mánaða iðkun hafði sjálfsálit, sjálfstraust og þakklæti aukist á meðan verulega dró úr þreytu og óhóflegri áfengisnotkun.
Á átta mánuðum greindu 89% af þeim sem stunduðu íhugunina frá betri heilsu, 98% sögust finna fyrir minni streitu og kvíða, 98% greindu frá batnandi samskiptum við fjölskyldumeðlimi og 88% greindu frá batnandi samskiptum við vini og nágranna.

Ummæli fólks um innhverfa íhugun
Næsta námskeið„Ég byrjaði að iðka innhverfa íhugun árið 1973… Það hefur veitt mér áreynslulausan aðgang að ótakmarkaðri uppsprettu sköpunar og hamingju djúpt innra með mér.”
David Lynch, kvikmyndagerðar- og myndlistarmaður
