Takmark okkar er að hjálpa fólki um allan heim að finna innri frið og lifa hamingjusamara og heilbrigðara lífi.
Íslenska íhugunarfélagið
Á Íslandi er innhverf íhugun kennd á vegum Íslenska íhugunarfélagsins, sem stofnað var árið 1975. Félagið er hluti af alþjóðahreyfingu Maharishi Mahesh Yogi (Maharishi Foundation) sem sett var á fót árið 1959 og hefur nú starfsstöðvar í um 100 löndum. Tilgangurinn er að efla iðkun innhverfrar íhugunar og viðhalda áreiðanleika kennslunnar.
Óhagnaðardrifið
Innhverf íhugun er kennd á Íslandi af Íslenska íhugunarfélaginu sem er hluti af Maharishi Foundation sem er óhagnaðardrifin menntastofnun.
Engir eigendur eða hluthafar
Félagið starfar ekki í hagnaðarskyni og renna öll námskeiðsgjöld í að styðja menntunarmarkmið félagsins.
Óháð úttekt
Reikningar félagsins eru endurskoðaðir árlega af óháðu bókhaldsfyrirtæki.
Dr. Tony Nader
Dr. Tony Nader hlaut læknismenntun sína í Harvard-háskóla og Massachusetts Institute of Technology (Ph.D. í taugavísindum) í Bandaríkjunum. Auk þess er hann alþjóðlega viðurkenndur fræðimaður í vedískum fræðum. Dr. Tony Nader er arftaki Maharishi Mahesh Yogi og yfirmaður aljóðasamtaka innhverfrar íhugunar. Hann hefur yfirumsjón með áætlunum varðandi innhverfa íhugun og aðrar framhaldsaðferðir sem byggja á henni og hagnýtingu þeirra á öllum sviðum lífsins, s.s. á sviði menntunar, heilsu, viðskipta, varnarmála, landbúnaðar og fleira.
Skráðu þig á ókeypis kynningarfund
Fjórir kennarar eru staddir á höfuðborgarsvæðinu og einn í Neskaupstað
Dæmi um starf íhugunarhreyfingarinnar í Bandaríkjunm
með einstökum starfsstéttum
Bókaðu ókeypis kynningarfund
Hafðu samband við réttindakennara í innhverfri íhugun til þess að fræðast meira um tæknina og ávinninginn af iðkun hennar.
„Ég hef „kafað inn á við“ með innhverfri íhugun í meira en 30 ár.
Það hefur breytt lífi mínu.“
David Lynch
Samband við kennara
Vinsamlegast fylltu út stutt eyðublað svo við getum komið þér í samband við íhugunarkennara.
